top of page

Vantar þig aðstoð á þínu andlega ferðalagi?

Það kemur sá tími í lífi margra að vakna andlega og því fylgir sannarlega þörf á að endurskoða lífið og hvernig við lifum því.

Ég trúi því að allir eigi jafna möguleika á að líða vel og vera hamingjusamir með þá stefnu sem þeir hafa í lífinu en af eigin reynslu veit ég að við þurfum stundum einhvern til þess að leiða okkur áfram, fá aðra vinkla á upplifanir okkar og tól til þess að stíga inn í það verkefni sem okkur þykir of erfitt til að takast á við ein/n. Andlega ferðalagið mun seint teljast auðvelt og ef það vill svo til að þú ert ein/n af þeim sem stendur á tímamótum í þínu lífi eða vantar einhvern til þess að leiða þig í gegnum erfið tímabil þá ert þú á réttum stað. Sjálf hef ég gríðarlega reynslu á bakinu í andlegri vinnu og hef lokið vissum kafla sem gerir mér kleift að fá enn betri innsýn í ferðalag einstaklinga og hvað gagnast þeim best á þeirra lífsgöngu. Ég vinn með fjöldan allan af meðferðum sem allar miða að því að skapa rými fyrir andlegan vöxt og losa um erfiðar tilfinningar sem hamla og/eða valda líkamlegum einkennum og andlegri vanlíðan.

Velkomin á síðuna mína. Eva Karen heiti ég og vinn í Guðs vitund með ljós Guðs í forgrunni.

Ég er til húsa í Reykjavík/Hafnarfirði en vinn einnig í gegnum síma/fjarfundi. Hægt er að bóka tíma hjá mér hvar sem þú ert á landinu. Ég vil stuðla að því að allir sem þurfi á aðstoð að halda fái hana óháð stöðu og því býð ég einnig upp á valfrjálsar greiðslur eftir samkomulagi.

          Kærleikskveðjur

Þjónusta í boði

Donate with PayPal
I wish you a wonderful weekend, may you

Um mig:

Eva Karen heiti ég og er hjálparmiðill, heilari og vinn með úrlausnir tilfinninga fyrir bæði börn og fullorðna.

Ég hef alla mína ævi haft brennandi áhuga á öllu sem tengist andlegri & líkamlegri heilsu og sjálfseflingu einstaklinga.

Frá því að ég man eftir mér hef ég alltaf verið mjög hjálpsöm manneskja og nýti því hvert tækifæri sem gefst til þess að aðstoða fólk í daglegu lífi með áskoranir og tilfinningar til þess að betrumbæta lífið. Ég bý yfir þeim eiginleikum að geta tengt mig við tilfinningar annarra og með því að hlusta fæ ég innsæi í hvað gæti gagnast viðkomandi best í þeirra lífsgöngu. Á persónulegan hátt tengist ég hverjum einstakling fyrir sig við úrlausn áskorana sem viðkomandi stendur frammi fyrir. Mitt aðalmarkmið er að opna huga og hjarta fólks og leiða áfram á rétta braut með að finna sinn tilgang í þessu kapphlaupi sem við köllum lífið.

Við erum öll einstök og höfum jafnan rétt á því að líða vel! 

Sigríður Hjördís, IS

"Upplifði dásamlega slökun og sálarnæringu hjá Evu! Fékk einnig skilaboð sem áttu vel við"

Sunna, IS

“Ég leita reglulega til Evu Karenar til að fá tilfinningalosun - Bæði fyrir sjálfa mig þegar allt verður of mikið og líka þegar börnin mín fjögur eru að eiga erfið tímabil. Hún hefur létt mikið á kerfunum hjá okkur öllum með sinni nálgun og tæru innsæi. Hún er líka bara svo innilega skilningsrík og opin. Það er alltaf gott að spjalla við hana”

Bianca Goulart, USA

“I felt completely welcomed by Eva, who quickly put into words exactly how I feel and helped me understand how I can make the changes I need. All with much love and care. I loved it and recommend it”

Endilega hafðu samband

evakaren86@gmail.com

+354 847 7757

  • facebook
  • generic-social-link

Takk fyrir skilaboðin

Candy Cotton

Gerast áskrifandi

    ©2025 Guðs vitund

    bottom of page